Úti á Túni er menningarfélag sem er með aðsetur í Verbúðunum á Húsavík. Að því standa einstaklingar sem hafa mikinn áhuga á fjölbreyttu og blómlegu menningarlífi. Það stendur meðal annars fyrir kvikmyndasýningum og ýmsum minni viðburðum. Hægt er að senda póst á okkur á utiatuniverbudum@gmail.com og finna okkur á facebook.

Wednesday, September 8, 2010

Opnun á næsta leiti!

Iðnaðarmenn vinna nú fullum höndum að því að koma húsnæði Ungmenningarhússins í lag svo hægt verði að opna formlega í september.  Ungmennahúshlutinn er tilbúinn og opnar annað kvöld fyrir 16-25 ára.  Kynningar munu fara fram á starfi hússins á næstu dögum fyrir þau börn og ungmenni sem þar munu hafa aðstöðu.
Meðal annars er búið að koma upp bíóstofu og aðstöðu fyrir hljómsveitir.  Mikil spenna er fyrir opnunarhátíðinni sem verður fyrir alla bæjarbúa en þar verður starfsemi hússins kynnt.