Úti á Túni er menningarfélag sem er með aðsetur í Verbúðunum á Húsavík. Að því standa einstaklingar sem hafa mikinn áhuga á fjölbreyttu og blómlegu menningarlífi. Það stendur meðal annars fyrir kvikmyndasýningum og ýmsum minni viðburðum. Hægt er að senda póst á okkur á utiatuniverbudum@gmail.com og finna okkur á facebook.

Wednesday, December 8, 2010

Jólatún



Tún er í jólabúningnum þessa dagana. Opið er alla seinni parta þessa viku frá 16:00 - 18:00. Miðvikudaginn 8. desember verður jólamarkaður í bilskúrnum þar sem margt spennandi verður til sölu, hann verður opinn frá 17:00 - 21:00 Það sama kvöld verður jólakortasýning í stofunni þar sem Alli á Mánarbakka, Kristjana María og Sigga Hauks verða með kort til sýnis frá öllum tímum og mörgum löndum. Í bíóherberginu verður myndin The Nightmare before Christmas sýnd. Minnum á miðvikudagsopnunina.