Úti á Túni er menningarfélag sem er með aðsetur í Verbúðunum á Húsavík. Að því standa einstaklingar sem hafa mikinn áhuga á fjölbreyttu og blómlegu menningarlífi. Það stendur meðal annars fyrir kvikmyndasýningum og ýmsum minni viðburðum. Hægt er að senda póst á okkur á utiatuniverbudum@gmail.com og finna okkur á facebook.

Monday, January 10, 2011

Nýtt Túnár gengið í garð

Þá er nýtt Túnár gengið í garð. Við þökkum öllum þeim sem heimsóttu okkur á liðnu ári og vonumst til að sjá ykkur sem flest aftur og ennþá fleiri. Við höldum áfram með miðvikudagskvöldin okkar frá og með miðvikudeginum 19. janúar. Hvetjum fólk til að fylgjast með okkur hér og á facebook.